Bloggfríi fer brátt að ljúka
Ég hef heldur betur slakað á í blogg- og greinaskrifum undanfarið. Ástæðan er einfaldlega sú að Ásta Hrund og ég tókum þá ákvörðun að gifta okkur og hefur sumarið svo sem farið í að vinna, skipuleggja brúðkaupið og svo loksins fórum við í smá ferð um landið. Brúðkaupsferð innanlands var mögnuð upplifun. Vá! hvað við búum á fallegri eyju. Kannski mun ég geta deilt með ykkur nokkrum stuttum vídjóklippum og myndum af þessari ferð okkar. En læt hér fylgja eina mynd af okkur hjónunum á brúðkaupsdeginum.
Vonandi mun ég finna tíma í bloggskrif á ný fljótlega. Ástandið hér á landi kallar á öfluga þjóðfélagsumræðu og mun ég ekki láta mig vanta þar á bæ. http://bit.ly/NoO2c