Þverpólitísk samstaða á Austurvelli
Þetta var góður fundur, en alls engin endastöð. Heldur bara byrjunin á baráttunni fyrir hag þjóðarinnar. Að samþykkja Icesave hefur sínar afleiðingar en að sjálfsögðu verða einnig átök ef/þegar núverandi samkomulagi við Breta og Hollendinga verður hafnað. Þessar fyrrverandi nýlenduþjóðir munu neyðast til þess að koma aftur að samningaborðinu.
Samstöðufundur Íslendinga á Austurvelli í dag var langt frá því að líkjast átökunum s.l. vetur. Í kvöld var engin krafa lögð fram um að ríkisstjórnin segi af sér… af hverju ekki? Vegna þess að nú þurfum við að ljúka þessu Icesave máli með farsælum hætti og leggja til hliðar um stund hina innlendu flokkspólitísku baráttu. Við þurfum niðurstöðu sem íslensk þjóð getur bæði sætt sig við og staðið undir.
http://bit.ly/pXsoZ